Færsluflokkur: Matur og drykkur
18.10.2011 | 18:29
Kátt hjá Héraðsmönnum og Akureyringum
Nú verður kátt á hjalla hjá Egilsstaðarbúum og Akureyringum þegar leyft verður að baka heima fyrir hjálparstarfið.
Sem kunnugt er fóru sýslumenn umræddra staða af stað og stoppuðu bakstur fólks og lentu skátarnir á Egilsstöðum í smá tjóni vegna þessa, höfðu bakað en fengu ekki að selja. Þeir þurftu því að fá lánað eldhúsið í Valaskjálf til að endurtaka baksturinn en gátu lítið nýtt það sem þeir höfðu gert áður.
Flott hjá Jóni bónda, að leggja fram þetta frumvarp.
Heimabakstur leyfður með lögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.10.2011 | 17:38
Bitvargar
Hvernig er að með bitvarga og lögreglumenn. Undanfarin ár virðist tölvert hafa orðið um að lögreglumenn séu bitnir af fólki, þá eru fréttir þess eðlis mikið frá Vestförðum.
Það verður að gefa þessu fólki eitthvað að borða ef það er orðið svo hungrað að það leggur sér mannakjöt tiol munns.
Beit lögreglumann í fingur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |