Færsluflokkur: Menntun og skóli

Áfengi keypt fyrir börn.

 ungdr 1

Foreldrar og aðrir aðstandendur barna og unglinga eru ekki kátir með það þegar áfengi er keypt handa börnum þeirra. 

Þó nokkuð er um að fullorðnir láti sig hafa það að skaffa börnum, áfengi.  Svo er það helvítis landasalan.

Aðstandendur barna ættu að taka sig saman og klaga þá sem eru að versla vín handa börnum þeirra.


Íslenskir glæpamenn í suður-Ameríku

Grunur leikur á að Íslendingur reki skipulagða glæpastarfsemi í Brasilíu. Smári Sigurðsson, yfirmaður alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra, segir enga tilviljun að Íslendingar hafi ítrekað verið gómaðir þar með kókaín.

Það er því augljóst að þeir sem eru að smygla þarna í suður-ameríku vita vel að hverju þeir ganga ef þeir eru gómaðir.

Það er því nokkuð ódýrt að tala heim og kalla, mamma, mamma, ég er ekki glæpamaður, þetta var alveg óvart.

Hvað hefði orðið um neytendur 6 kílóa af Cocaini hér heima.  Þetta hefði orðið um 55-60 kíló á götunni svo það er ekki verið að tala um neitt smáræði.

Hvaða vorkun hefðu fjölskyldur sem splundrast hefðu fengið hjá almenningi vegna þessa.  Ég held enga.

Af hverju eru þá fréttamenn sífellt að setja upp ákall eftir vorkunsemi fyrir smyglarann sem hefði með farmferði sínu skapað' mörgum fjölskyldum hörmungum og jafnvel splundrað þeim.

Ja for fanede.

Þeir sem eru tilbúnir til að standa í svona nokkru og valda ómældri óhamingju margra mega mín vegna rottna í þriðja-heims fangelsum.


Hvað er svona neyðarlegt við að kaupa smokk

Smokkur S

Hvað er svona neyðarlegt við að kaupa smokk í matvöruverslunum.  Ekki stendur á kröfum um að fá áfengi til sölu í þeim, eru minni vandræði við kassann ef menn eru að kaupa pulsupakka og tvo bjórkassa.

Ég hefði talið að gott væri að setja upp sjálfsala á öllum almenningsalernum (líka hjá konum) svo að þeir feimnu geti reddað sér. 


mbl.is Neyðarlegt að kaupa smokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband