Þetta lýst mér vel á

Nú er ég ánægður, mótmæli nær vikulega framan við þinghúsið og Hörður Torfa kominn aftur.  Nú verður vonandi alvöru þrýstingur á stjórnvöld.

Við megum ekki gleyma þeim stóra niðurskurði sem hefur dunið á okkur undanfarið nær eingöngu til að rétta hlut peningavaldsins, sem kom okkur í þau vandræði sem við erum í í dag.

 Burt með Jóhönnu og Steingrím


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Þú ert að misskilja. Mótmælin beinast að þeim peningaklíkum sem beitt hafa almenning ofbeldi.

Þar er um aðra flokka að ræða en þá sem nú sitja í stjórn.

hilmar jónsson, 12.10.2011 kl. 22:04

2 Smámynd: Camel

Þetta er ekki misskilningur Hilmar.  Þessir flokkar sem nú sitja eru handbendi auðvaldsins eins og flestir aðrir flokkar á þingi í dag, bara strengjabrúður.  Skoðaðu loforðapakkann fyrir heimilin og efndirnar sem orðið hefur á honum.

Svo skulum við skoða stöðu þeirra sem létu mikið fyrir sér fara fyrir hrun, hvernig þeim hefur verið reddað á þeim forsendum að ekki megi glata þekkingu sem þeir hafa.

Ég segi því, tökum alla peninga af þessu fólki og skiptum strengjabrúðunum út.

Camel, 13.10.2011 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband