18.12.2011 | 12:58
Þarf virkilega einhver að deyja í göngunum ?
Gott er ef satt er að Kristján Möller meini það í fúlustu alvöru að styðja ný Norðfjarðargöng og að staðið verði við loforðin sviknu, sem eru orðin ansi mörg.
Þörf er á nýjum göngum strax þar sem Oddskarðsgöng eru má segja, þegar ónýt sökum hrunhættu. Það var í liðinni viku sem stærðarinnar steinn losnaði og féll niður. Giskað var á að hann væri um 300 kg. og var þetta við annað útskotið í göngunum. Vegargerðin fór inn og fjarlægði bjarg þetta án þess að loka göngunum á meðan né að setja upp merkingar um vinnu í göngunum. Ég veit ekki hvaða pukur þetta er í Vegargerðinni með þessi göng, geta þeir ekki viðurkennt að þau eru ónýt ?
Það hefur heyrst hér fyrir austan að stórir toppar innan Vegagerðarinnar séu á móti Norðfjarðargöngum. Ef það er rétt, þá er ekki nema von að svona gangi.
Styður ekki samgönguáætlun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Samgöngur | Facebook
Athugasemdir
Norðfjarðargöng eru brýnt mannréttindamál og Kristján Möller hefur skilning á því.
Gunnar Th. Gunnarsson, 18.12.2011 kl. 13:47
Gunnar, Getur hann sannfært samstarfsmenn sín um nauðsynina á þeim
Camel, 18.12.2011 kl. 15:32
það þurfti einmitt banaslsys til þess að göng undir almannaskarð yrðu að veruleika...
Ingi St. (IP-tala skráð) 18.12.2011 kl. 15:45
Það skiptir þessa ríkisstjórn engu máli hvort að banaslys yrði, þeim er sko nákvæmlega sama.... er fólki á Íslandi ekki farið að skiljast að þjóðin er ekki áhugaverð hjá samfylkingunni og VG.
jóhanna og co eru sko ekki að vinna fyrir ykkur!
Thordur G. Sigfridsson (IP-tala skráð) 18.12.2011 kl. 16:59
Ingi, það er rétt hjá þér með slysið við Almannaskarð. Þá var gert gat í fjallið með snari, utan við allar áætlanir þar um í vegamálum.
Thordur, þessi ríkisstjórn ætti að draga úr utanlandsferðum sínum og verða okkur til athlægis á erlendri grund. Heimurinn er enn að hlægja að því þegar Ingibjörg Sólrún vildi komast í öryggisráð SÞ. Þessir heimskulegu túrar kosta nú sitt
Camel, 18.12.2011 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.