Hrun eftir hryðjuverkalög

Eftir að flokkur Browns fékk vítamínssprautu eftir að hryðjuverkalögunum var beitt á Íslendinga og fólk fór að átta sig á vitleysunni hefur hallað undan hjá karl uglunni og segi ég enn og aftur, farðu í rassgat Mr. Brown
mbl.is Hallar undir stjórn Browns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er svona neyðarlegt við að kaupa smokk

Smokkur S

Hvað er svona neyðarlegt við að kaupa smokk í matvöruverslunum.  Ekki stendur á kröfum um að fá áfengi til sölu í þeim, eru minni vandræði við kassann ef menn eru að kaupa pulsupakka og tvo bjórkassa.

Ég hefði talið að gott væri að setja upp sjálfsala á öllum almenningsalernum (líka hjá konum) svo að þeir feimnu geti reddað sér. 


mbl.is Neyðarlegt að kaupa smokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Árvakur til sölu

Getur Jón Ásgeir ekki farið ofan í rassvasann, er hann ekki að kaupa alla fjölmiðla á Íslandi ?
mbl.is Unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Árvakurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er skömm að þessu

Þessar einkareknu stöðvar vissu að hverju þær gengu þegar þær komu á markað.  Nú á að fara að bola RUV út í horn fyrir þessar stöðvar og er það miður.  Við eigum að hlúa að okkar miðli enn frekar en að kroppa af honum.

Var ekki verið að kvarta um það um daginn að flestir fjölmiðlar væru komnir í hendur eins manns, á hann eitthvað inni hjá ríkinu sá.

Það er skömm að þessu ráðamenn.


mbl.is RÚV af auglýsingamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útvarpið okkar allra

Skorið verður niður um 550 til 600 milljónir króna í rekstri Ríkisútvarpsins vegna aðstæðna í efnahagslífinu. Á milli tuttugu og þrjátíu starfsmönnum verður sagt upp störfum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Þetta er það sem landinn fær í andlitið núna.  Á ekki bara að leggja niður útvarp allra landsmanna svo einkageirinn komist betur að.


mbl.is Boðað til starfsmannafundar hjá RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er verið að hóta

Er Vilhjálmur að hóta einhverjum aðgerðum Samtaka atvinnulífsins með þessum orðum:  Innflytjendur munu mjög fljótt fara í það far sem var hér áður, þegar menn voru með umboðslaun og alls kyns viðskipti með vörur og þjónustu fram og til baka erlendis áður en varan og þjónustan var tekin inn í landið.
mbl.is Mun stórskaða viðskiptalífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strippað á Lækjartorgi

bilde

Hvað er gert við Íslending sem mætir opinberlega fram, úti á götu einungis á brókinni.  Jú hann er þegar tekin úr umferð og fær væna sekt fyrir ósiðsemi.  Hvað með þessar dömur, vissulega eru þær flottar að sjá þó ég sé á móti málstaðnum, einum of öfgakenndur fyrir mig.

Fyrir mörgum árum kom hér japanskur listamaður og var með gjörning á Lækjartorgi.  Hann var nakinn að öðru leiti en að hann var með sárabindi um sprellann á sér, þetta þótti í lagi.

Hvað ætli margir Íslendingar hafa fengið sektir fyrir að bera sig í miðbænum á milli þessara tveggja viðburða.

 


mbl.is Í eigin skinni á Lækjartorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að henda manni út í skuldafenið

penguin

Þetta er glapræði, að fá fólk til að taka jólin á raðgreiðslu.  Það er eins og fá klapp á bakið og henda manni út í skuldafenið, á bóla kaf

Vonandi fer fólk ekki út í þessa vitleysu þar sem endurgreiða þarf en margir gleyma því.

Ég held að fólk ætti að halda að sér höndum þar sem dylgjur eru hjá ráðamönnum um að ástandið eigi eftir að versna verulega eftir áramót. 

 

 


mbl.is Hagkaup býður jólalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Joseph Fritzl Bretlandseyja

Þetta er nú meiri andskotans pervertinn.  Hvað fær föður til að riðlast á barnungum dætrum sínum og halda því áfram árum saman.  Ekki nóg með það heldur marg barna þær líka, 19 sinnum.

Það sem ég hefði viljað gera við svona mann er ekki prenthæft.

Og svo voru allir að kafna yfir Joseph Fritzl sem var engu betri.

Verða þeir fleiri sem eiga eftir að koma fram


mbl.is Barnaði dætur sínar nítján sinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynlíf og súkkulaðikaka

Gomul hjon

Hverslags prédikun er nú þetta.  Kynlíf í viku og hvað svo, allt búið eða hvað.  Svo þeir sem ekki eiga maka, eiga bara að fá sér súkkulaðiköku.


mbl.is Stundið meira kynlíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband