Hrókeringarnar. Til hvers ?

Jóhanna er ánægð með breytinguna enda engin furða þar sem hún er komin á beinu brautina í Evrópumálunum með þessu, laus við röflið í Jóni og allt.

Þá er Steingrímur flúinn út í horn frá fólki sem hefur persónugert skattpíningar á hann.  Hún Odda litla mun taka við og segir strax að engar breytingar verði á stefnunni, fólk verði skattpínt áfram eins og verið hefur.  Það mun því verða gleðilegt árið 2012 hjá skítblönkum almenningi.

1a


mbl.is Ný ríkisstjórn á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynjakvótinn skal blífa

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, mun fá ráðuneyti er hún snýr til baka úr fæðingarorlofi.

Já, það þarf víst að uppfylla kynjakvótann segja þeir, varðandi æðstu fulltrúa ríkisstjórnar.  Spurningin er, hvar eigum við að setja forsætisráðherrann.  Þegar Hún/hann kvæntist eða giftist, hvoru megin stóð hún/hann við altarið þegar athöfnin fór fram.

Ég vill taka það fram að ég er ekki að tala gegn kynvillu með þessum ummælum.  Ég á aðeins við það að ekki á að gera upp milli einstaklinga eftir kynferði þeirra heldur því sem þeir standa fyrir.


mbl.is Katrín mun fá ráðuneyti eftir orlofið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of heiðarlegur og fylgir stefnu gefinna loforða

„Ég er að sjálfsögðu í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og tel ennþá brýnna en nokkru sinni að treysta það að flokkurinn fari eftir hugsjónum og stefnu sinni sem þingmennirnir voru kosnir til.“

Þetta sagði Jón en er hann að tala frá hjartanu.  Ég sé þetta sem að Jón hafi verið snúinn niður í skítinn og sagt að haldfa kjafti.  Ég held líka að ríkisstjórnin sé sprungin með þessu, sem betur fer.

Það er ekki gott ef að menn sem berjast mót því að landið sé gefið ESB á vald og auðlegðir þess ekki í okkar umsjá lengur séu settir út í kuldann og sagt að halda kjafti annars....

Ég held að tímabært sé að þessi ríkisstjórn sem nú er við stjórnartaumana segi af sér og hleypi að fólki sem hefur raunhæfar framtíðarhugsjónir og framkvæmdarvilja.


mbl.is Veikir stjórnarmeirihlutann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak SVN

Það er heldur betur flott framtakið hjá SVN að styrkja björgunarsveitina í Neskaupstað með 2,5 millum.  Þessi styrkur kemur í kjölfarið á fárviðri því sem gekk yfir í Neskaupstað á aðfangadagskvöld.

Fram kemur í fréttinni að húsnæði og bátur björgunarsveitarinnar hafi orðið fyrir umtalsverðu tjóni í óveðrinu og að sennilega bættu tryggingar ekki nema hluta tjónsins.  Þetta er alveg með ólíkindum ef svo er.  Tryggingar eiga að mínu mati að bæta tjón þeirra að fullu og veita þeim fjárstyrk að auki fyrir frækilega framgöngu á aðfangadag.  Björgunarsveitin kom í veg fyrir að flutningaskip og frystitogari rækju upp í grjótgarð þegar þau voru að slitna frá bryggjunni og löfðu þar við á lyginni einni saman.

Það má því með sanni segja að fólkið í björgunarsveitinni hafi sparað tryggingunum tugi ef ekki hundruð miljóna í bótagreiðslur.

Hvernig er það, eiga björgunaraðilar skipa ekki að fá greiðslur miðað við andvirði skipa þeirra sem þeir bjarga frá stórskaða ? 

Vonandi taka svo önnur fyrirtæki SVN til fyrirmyndar og láti eitthvað af hendi rakna, það munar um allt.


mbl.is Síldarvinnslan styrkir Gerpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að vopna lögregluna enn frekar ?

Eigum við að vopna lögregluna frekar en orðið er ?  Hvernig eigum við að gera það ef svo verður ?  Spurningin er um byssur og Taser rafvopn.

Þessar græjur koma sér örugglega fyrir þá lögreglumenn sem vinna úti í fámenninu, einir eða með einn með sér og langt í næstu aðstoð.

Hérna er athygliverður fréttapistill um málið.


Strákurinn úr götunni minni

Það gleður mig mikið að strákurinn í götunni minni, hann Eggert, skuli vera að ganga í það lið sem ég hef haldið með frá því ég fór að fylgjast með enska boltanum.  Eggert er því að verða Úlfur.

Vonandi tekst honum að lyfta liðinu aðeins upp, alla vega upp undir miðja deildina til að byrja með.

Wolves-FC


mbl.is Eggert Gunnþór: Tilbúinn að taka næsta skref
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykingar og siðblinda

Nú er það komið á hreint, reykingar í bíómyndum hefur áhrif á börn og unglinga til að hefja reykingar.

Þá er ein stór spurning, hefur ofbeldi í bíómyndum svipuð' áhrif á börn og unglinga og reykingarnar ?

Hvernig er með nauðganir og pyntingar ?

Erum við ekki að gera börnin okkar siðblind með ofbeldismyndum ?

Ég veit ekki hvaða dauðdagi er bestur af þessum pakka, ég alla vega held áfram að reykja minn Camel


mbl.is Baráttan um reykingar í kvikmyndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur er ekki alltaf blankur

Hann Ögmundur er öfugnúinn sem fyrr þegar kemur að Norðfjarðargöngunum.  Nú hendir hann skít í Möllerinn fyrir að tala máli ganganna í ríkisstjórninni, göngum sem búið er að svíkja Fjarðabyggðabúa um síðan sveitafélagið var stofnað.

Ögmundur virðist ekki skilja það að gömlu göngin í Oddskarði eru ónýt og eru að hrynja saman.  Þegar það verður er enginn vegur sem getur tekið við umferð til og frá Neskaupstað.  Reyndar er vegarslóði yfir Oddskarð en hann getur ekki tekið við þeim þunga sem er þarna um, getur ekki valdið þeim þungaflutningi sem er.

Ögmundur talar um fjárskort.  Ekki virðist vera neinn fjárskortur hjá ríkinu þegar kemur að listamannaelítunni.  Þangað er endalaust mokað peningum þegar við í raun höfum ekki efni á að skemmta okkur með þeim hætti sem ríkið vill láta okkur gera.

Ég vill því þessa ríkisstjórn burt og fá aðra sem gerir eitthvað annað við peninginn en að henda honum í skemmtanahald.

nesk 1


mbl.is Ögmundur segir loforðapólitík Kristjáns liðna tíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú meira bullið í Vegagerðinni

Vegagerðin hamast nú við að bera til baka frétt um að hrunið hafi úr Oddskarðsgöngum síðastliðinn miðvikudag og vill ekki kannast við að stórt grjót hafi fallið úr göngunum.

Samt kemur fram hjá þeim við fréttamann að hrunið hafi úr göngunum á fimm metra kafla svokallaður kargi.  Sennilega eiga þeir þarna við smágrjót.

Hvaðan kemur þá stóri steinninn á veginum ?  Mér skilst að hann hafi verið tekinn úr gangaraveggnum af því að hann var laus.  Átti hann þá bara eftir að hrynja ?

Ég er nær viss um að allt yrði vitlaust fyrir sunnan ef færi að koma grjót í tíma og ótíma niður úr Hvalfjarðargöngum.

Ég held satt að segja að Vegagerðin ætti að skammast til að viðurkenna það að Oddskarðsgöng séu ónýt og varasöm um að fara.


mbl.is Ekki grjót sem hrundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf virkilega einhver að deyja í göngunum ?

Gott er ef satt er að Kristján Möller meini það í fúlustu alvöru að styðja ný Norðfjarðargöng og að staðið verði við loforðin sviknu, sem eru orðin ansi mörg.

Þörf er á nýjum göngum strax þar sem Oddskarðsgöng eru má segja, þegar ónýt sökum hrunhættu.  Það var í liðinni viku sem stærðarinnar steinn losnaði og féll niður.  Giskað var á að hann væri um 300 kg. og var þetta við annað útskotið í göngunum.  Vegargerðin fór inn og fjarlægði bjarg þetta án þess að loka göngunum á meðan né að setja upp merkingar um vinnu í göngunum.  Ég veit ekki hvaða pukur þetta er í Vegargerðinni með þessi göng, geta þeir ekki viðurkennt að þau eru ónýt ?

Það hefur heyrst hér fyrir austan að stórir toppar innan Vegagerðarinnar séu á móti Norðfjarðargöngum.  Ef það er rétt, þá er ekki nema von að svona gangi.


mbl.is Styður ekki samgönguáætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband