Færsluflokkur: Bloggar

Kynjakvótinn skal blífa

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, mun fá ráðuneyti er hún snýr til baka úr fæðingarorlofi.

Já, það þarf víst að uppfylla kynjakvótann segja þeir, varðandi æðstu fulltrúa ríkisstjórnar.  Spurningin er, hvar eigum við að setja forsætisráðherrann.  Þegar Hún/hann kvæntist eða giftist, hvoru megin stóð hún/hann við altarið þegar athöfnin fór fram.

Ég vill taka það fram að ég er ekki að tala gegn kynvillu með þessum ummælum.  Ég á aðeins við það að ekki á að gera upp milli einstaklinga eftir kynferði þeirra heldur því sem þeir standa fyrir.


mbl.is Katrín mun fá ráðuneyti eftir orlofið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjálað stuð á blogginu hjá Vísi.is

Það er frekar fjörlítið á bloggsíðu Vísir.is þessa dagana, allt í skralli og engar nýjar færslur.  Það er með ólíkindum að ekki skuli koma neitt um það hvað sé að eða hvað ástandið verður lengi svona.

Ég sé líka að allt er eins og var hér á þessu bloggsvæði þar sem reynt er að lyfta huliðshjálminum af þeim nafnlausu.  Það er víst gert fyrir þá sem eru hræddir við launsátur, eru huglausir og saka þá nafnlausu um skort á kjarki til að koma fram. 

 Það geta legið ýmsar ástæður fyrir því að fólk vill blogga nafnlaust.  Því miður verður það að viðurkennast að margir hafa misnotað bloggið undir nafnleynd og verðum við hin að taka afleiðingum þess, en svona er þetta bara.


Jólasveinar enn á ferð

dancing_deer_mom

Fimm jólasveinar brutust um helgina inn í Sláturhúsið á Hellu og stálu þaðan samtals 670 kílóum af kjötvörum.

Jólarnir voru á tveimur bílum.  Selfosslögreglan stöðvaði bílana rétt austan við Selfoss og fann þýfið.

Þá voru jólasveinarnir beggja bílanna undir áhrifum fíkniefna.

Þetta er fjórða innbrotið í sláturhúsið frá því í ágúst s.l. og leikur grunur á að sömu jólasveina kunni að hafa verið að verki í öll skiptin. Lögreglan á Hvolsvelli sér um rannsókn málsins.  

Það er þokkalegt að vera út úr skakkur við að stela sér til matar.


Það var óþarfi að sleppa þeim strax

Mönnunum þremur sem handteknir voru í kjölfar mótmælanna við Hótel Borg í dag, var sleppt að loknum yfirheyrslum undir kvöld.

Það hefði mátt geyma þá til morguns að skaðlausu.  Það verður að stoppa ofbeldi mótmælanda strax annars fáum við víðlíka uppákomur fram eftir öllum vetri.


mbl.is Þremenningunum sleppt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að koma nakinn fram

Fatalaus

Nú er svo komið á blogginu að maður verður að koma nakinn fram ef maður ætlar að fréttablogga  Þetta finnst mér miður.

Ég blogga nú ekki mikið hérna en það verur sennilega lítið sem ekkert eftir breytinguna 1 jan.

Mér er alveg sama hvað þeir gera, þeir skulu aldrei komast að því að ég heiti Túrilla Joensen


Drykkjuskapur um jólin

Það er algengara en tárum taki hve margar fjölskyldur eru ofurseldar Bakkusi konungi um jólin.  Það er þó nokkuð mikið um útköll lögreglu og félagsmálayfirvalda vegna þessa og er það til skammar.  Hvernig líf er það fyrir börnin að horfa á foreldra sína um jól, dauða drukkin og í hasar út af einhverjum málum sem ekki á að gera upp fyrir framan þau.

Þar sem erfiðleikarnir í þjóðfélaginu nú koma kannski illa niður á svona fjölskyldum má búast við sprengingu í útköllum um þessi jól því miður.  Því ættu sem flestir að láta tappann vera í flöskunni yfir hátíðarnar og hugsa frekar um börnin sín.


mbl.is Aukinn vandi kvenna sem fela drykkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Srumparnir

Rainingi L

Jæja, þá eru þeir aftur mættir, Strumparnir, til að haga sér eins og fífl fyrir framan Ráðherrabústaðinn.

Flestir eru jú ágætir en innan um eru einhverjir nokkrir sem eru þarna til að ná sér í fjör og ekkert annað, slæmt að hafa þá með.


mbl.is Hávær mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengið að eigum manna

truck2smSEPTICFR

Er þetta það sem framundan er.  Ganga að fólki af fullum þunga, prútta niður eigurnar, nánast niður í ekki neitt og skilja það svo eftir, ekki á brókinni heldur brókarlaust.

Vörubílstjórar fóru á fund Halldórs Jörgenssonar forstjóra Lýsingar í morgun vegna innheimtuaðferða þeirra.

Halldór segir Lýsingu ekki geta gert neitt annað miðað við þær verkslagsreglur sem unnið er eftir. Jafnt verði yfir alla að ganga. 

Ekki líst mér á ástandið ef framhaldið verður svona hjá lánadrottnum.  Hvar eru loforð ríkisstjórnar um frystingu lána og að ekki verði gengið að fólki fyrr en um mitt næsta ár í fyrsta lagi.

 


mbl.is Kröfur frá Deutsche Bank
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er bara að bulla núna

Össuri er gjarnt að vera svolítið yfirlýsingaglaður og segja það sem hann heldur að almenningur vilji hlusta á.  Hann blaðrar þar til Ingibjörg kippir í spottann en þá þagnar hann.

Þegar Ingibjörg hefur tekið hann á teppið étur hann alla vitleysuna ofan í sig að vanda.


mbl.is Bókunin frá Össuri komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað reykir Obama

camel 1

Það er ekki algengt að skrifað sé um reykingar þjóðhöfðingja.  Það er þá helst að það sé skrifað um reykingar Danadrottningar.  Nú hefur Barack Obama bæst í hópinn.

Ætli karlinn reyki Camel eins og ég.

 


mbl.is Obama lofar að reykja ekki í Hvíta húsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband