Jólasveinar enn á ferð

dancing_deer_mom

Fimm jólasveinar brutust um helgina inn í Sláturhúsið á Hellu og stálu þaðan samtals 670 kílóum af kjötvörum.

Jólarnir voru á tveimur bílum.  Selfosslögreglan stöðvaði bílana rétt austan við Selfoss og fann þýfið.

Þá voru jólasveinarnir beggja bílanna undir áhrifum fíkniefna.

Þetta er fjórða innbrotið í sláturhúsið frá því í ágúst s.l. og leikur grunur á að sömu jólasveina kunni að hafa verið að verki í öll skiptin. Lögreglan á Hvolsvelli sér um rannsókn málsins.  

Það er þokkalegt að vera út úr skakkur við að stela sér til matar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Skakkir jólasveinar? Hljóta að missa starfsleyfið?

Arinbjörn Kúld, 5.1.2009 kl. 16:01

2 Smámynd: Camel

Maður skildi nú ætla það en þette eru nú einu sinni synir Grýlu

Camel, 5.1.2009 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband