Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.11.2011 | 18:28
Bændur og sægreifar
Ég verð nú að taka undir það að ekki sé eðlilegt að eignarhald á landinu sé í höndum fárra manna sem eilíft er með frekju við veiðimenn sem ætla að skjóta sér í ofninn eða á pönnuna.
Nokkrir stórbændur segjast eiga land frá fjallatoppum að fjöru og ekki bara það heldur eiga þeir sjóinn nokkuð út fráfjörunni. Þessu verður almenningur að kyngja, almenningur sem vill fá að bjarga sér með veiði af einhverju tagi. Það er alveg nóg handa þessum bændum, land til búskapar og annað verði´handa almenningi. Bændasamfélagið er löngu liðið og verður að koma þeim í skilning um það.
Svo eru það blessaðir útgerðarmennirnir sem verður að skoða. Það getur heldur ekki talist eðlilegt að fáar fjölskyldur í landinu séu með eignarhald á óveiddum fiski, veðsetji hann fyrir erlendum lánum. Það sjá allir að illa getur þá farið ef erlendir aðilar ganga eftir því veði ef útgerðin fer á hausinn.
Nei, landið og miðin í eigu almennings og hana nú.
Einkaeign á landi úr sögunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2011 | 10:49
Ja hérna hér
Hvað er maðurinn að bulla. Það er allt í lagi í þessu landi, skuldug heimili ekki til lengur og við erum að verða ein ríkasta og hamingjusamasta þjóð í heimi, þökk sé skjaldborginni.
Það eru engir fátæklingar til á Íslandi og hafa ekki verið síðustu áratugina svo hvert er vandamálið
Þjóðstjórn um skuldamál heimilanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2011 | 19:48
Það var mikið
Ég verð að taka undir það sem Guðfríður Lilja er að brasa núna, vel gert hjá henni að koma þessum málum á hreint.
Ég vill hafa landið í eigu þeirra sem hérna búa svo einfalt er það nú bara.
Vill endurskoða lög um landakaup | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2011 | 02:15
Hvað er að þessum kerlingum
Kristbjörg gefur upp margar ástæður þess að hún hætti hjá framsókn, ein er sú sem sennilegust eru sem aðalástæða og hún er:- Einnig þurfa stjórnmálaflokkarnir að tryggja jafnræði beggja kynja í öllu starfi, segir í yfirlýsingu frá Kristbjörgu.
Þetta eru hefðbundnar yfirlýsingar femínista sem halda að allt verði betra ef konur stjórni nær öllu. Ég yrði ekki hissa þó hún væri á leið í konudrauma Lilju Mósesdóttur
Á ekki lengur samleið með Framsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2011 | 22:26
Hún er heldur betur fúl þessa dagana
Jóhanna er nokkuð fýlugjörn þessa dagana. Fyrst eru Evrópudraumar hennar að renna út í sandinn og þegar hún getur ekki gefið Þjóðverjum og Frökkum landið þá vill hún selja það í partasölu til Kína.
Vonandi hrökklast kerlingin og allt hennar hyski frá völdum áður en stórskaði hlýst af varðandi sjálfstæði þjóðarinnar.
Harmar ákvörðun Ögmundar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2011 | 14:53
Með dollaramerki í augunum
Mikið skelfing er ég ánægður með að landið skuli ekki selt útlendingum, við eigum að eiga landið sjálf. Salan á Grímstöðum hefði aðeins verið upphafið að sölu jarða til útlendinga og hefðu þá flestar stórjarðir horfið undir þá.
Eins og flestir vita ná stórjarðirnar flestar langt inn á hálendið eins og jörðin Brú á Jökuldal. Hún hefði kannski orðið næst og þá hefði farið land allt að Vatnajökli í Norðri.
Norðlendingar verða bara að bíta í það súra, einu sinni enn, þar sem stóriðjan var nú tekin frá þeim vegna umhverfiskerlinga á þinginu okkar góða. Megi þær detta út í næstu kosningum.
Jarðeigendur verða því enn um sinn að vera án dollaramerkja í augunum. Svo er kannski ekki eins mikil þörf á Vaðlaheiðagöngum að sinni
Landeigendur harma niðurstöðuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2011 | 12:52
Hefur ekki kjark til að reikna
Ég er ekki hissa á því þó menn þori ekki að leggja í útreikning á sjálfbærni Vaðlaheiðaganga og beri þar öllu við til að losna við verkið s.s. eins og fjölskyldutengslum.
Nú er það spurningin, hver verður fenginn til að reikna út þessa sjálfbærni ganganna ? Hver situr uppi með þessa neikvæðu niðurstöðu sem kannski verður til þess að hætt verði við gerð ganganna að sinni.
Það vita það nú flestir, sem hafa fylgst með þessu máli, að göngin koma aldrei til með að verða sjálfbær. Það endar því á ríkinu að borga brúsann.
Meta ekki Vaðlaheiðargöng | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2011 | 01:27
Eru þau spæld
Harðlínuöfl ofan á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.11.2011 | 16:44
Þá vitum við það
Nú vitum við hver verður næsti forsætisráðherra og óska ég Bjarna til hamingju.
Vonandi heldur hann umhverfiskerlingunum í lágmarki í stjórn sinni, þær gera hvort eð er ekkert annað en standa í vegi fyrir framþróun og hugsa bara um hvað Geiri á Gullputtanum sé vondur maður.
Óendanlega þakklátur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2011 | 15:51
Hvaða þjóðflokki tilheyrir þú
Það eru tvær þjóðir í þessu landi, það leynir sér ekki ef málið er skoðað aðeins.
Fólk virðist geta keypt sér dýrar vörur í stórum stíl þó allt eigi að vera hér í kalda koli. Hverjir eru það sem hafa efni á úrum á verðbilinu 400 þúsund til 1,5 miljón. Svo eru fréttirnar þær að sala lúxusbíla sé farin að glæðast aftur, húsfyllir trekk í trekk í Hörpunni þar sem miðinn kostar ekkert lítið og skemmtistaðir eru sko ekki tómir í dag, nei ó nei.
Svo er það hin hliðin. 700 fjölskyldur á Suðurnesjum þurfa aðstoð Fjölskylduhjálpar og er reiknað með að þær verði orðnar 1000 fyrir jól. Þá eru víst 6000 fjölskyldur í svipuðum kröggum á höfuðborgarsvæðinu. Ekki hafa komið fram tölur annarstaðar frá á landinu.
Já, það eru tvær þjóðir í landinu.
Rolex-úrin rjúka út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |